Slotið
, 551 Sauðárkrókur
About
„Slotið, sem nú er oftast nefnt Virkishóll, er sléttur grasi gróinn hóll eða hólhryggur ofan vegar norð-austan við kirkjuna. Á hólnum var varnarvirki það er Jón Arason lét gera þegar hann átti í sem mestum deilum við danska konungsvaldið. Nefndi hann virkið Hólaslot, og var hæðin nefnd Slot í daglegu tali fram yfir síðustu aldamót. Virkislág er lægð í Slotinu suð-austan til, um 20 metrar að lengd og liggur í austur-vestur. Hún stefnir á kirkjuna, þar sem kemur saman kór og framkirkja. Lægðin er talin vera leifar af virkisgröf þeirri er Jón biskup lét gera.“