Vitin fimm og minningarnar – málverkasýning sr. Gumma Kalla
Keflavíkurkirkja / Keflavik Church, Kirkjuvegur 21, 230 Keflavík Directions
Sat 05.09.2026 14:30
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson eða Gummi Kalli hefur þjónað sem prestur í 30 ár, lengst af í Kópavogi. Hann hefur fengist við myndlist frá unga aldri og hin síðari ár hefur hún sótt æ meira á hugann.
Fyrir tveimur árum fór Gummi Kalli í nám í olíumálun í Flórens á Ítalíu. Verkin á sýningunni - Vitin fimm og minningarnar, eru að hluta máluð þar, en önnur sækja innblástur til æskuslóða hans í Keflavík og þeirra töfra sem minningarnar geta lagt yfir hversdaginn.
Sýningin verður í Kirkjulundi yfir Ljósanæturdagana og opnar fimmtudaginn 3. september.
Opnunartímar:
Fimmtudagur kl. 17–22
Föstudagur kl. 17–20
Laugardagur kl. 14:30–18
Sunnudagur kl. 13–16
Ljósanæturdagskrá Gumma Kalla lýkur síðan með helgistund í Keflavíkurkirkju ásamt hljómsveit, sunnudagskvöldið 6. september kl. 20 undir sömu yfirskrift - Vitin fimm og minningarnar.
Verið hjartanlega velkomin í Kirkjulund yfir Ljósanótt ✨