Syngjum saman í Hannesarholti með Jóhönnu Elísu
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions
Sat 28.11.2026 14:00
Syngjum saman í Hannesarholti með Jóhönnu Elísu. Textar á tjaldi og allir taka undir. Allar kynslóðir velkomnar. Frítt inn.
Jóhanna Elísa er tónlistar- og leiðsögukona með fjölbreytta reynslu á sviði tónlistar, meðal annars sem píanó- og söngkennari. Hún spilar reglulega fyrir ferðamenn og kynnir íslenska tónlist á skemmtilegan og lifandi hátt. Jóhanna hefur gefið út tvær plötur og er þekkt fyrir tæra og fallega rödd. Hún leggur áherslu á notalega stemningu þar sem áheyrendur taka þátt og njóta saman.
Streymt verður frá söngstundinni.