Opin Módelteikning í Ægi 220
ÆGIR 220 brugghús, Strandgata 90, 220 Hafnarfjörður Directions
Tue 01.09.2026 18:30
Opnu módelteiknikvöldin eru að hefjast á ný!
Næstkomandi þriðjudag hefja opnu módelteiknikvöldin í boði @ishushafnarfjardar og @aegir220 göngu sína á ný.
Fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Notaleg kvöldstund í góðum félagsskap. Tækifæri til að æfa, prófa sig áfram og byggja upp færni. Hvort sem þú vilt einfaldlega njóta þess að sitja með blýant í hönd í góðum félagsskap eða nýta kvöldið til að þróa listræna færni þína, þá eru allir velkomnir.
Þetta er annað árið sem kvöldin eru haldin og hafa viðtökurnar verið frábærar hingað til. Við hlökkum til að halda áfram!
Sjáumst á þriðjudaginn!
Performers
-
ModelteiknikvoldOpin Módelteiknikvöld @aegir220
Fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna
Notaleg kvöldstund í góðum félagsskap