Öld ímyndunaraflsins - Útgáfuhóf!
Forlagið bókabúð, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Directions
Thu 03.09.2026 17:00
Í tilefni útgáfu bókarinnar Öld ímyndunaraflsins eftir Berg Ebba Benediktsson verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins fimmtudaginn 3. september kl 17:00.
Höfundur les upp og áritar bækur, léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Öld ímyndunaraflsins er hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina. Gervigreind er mál málanna í dag – geysivíðtækt efni sem Bergur Ebbi skrifar hér um af smitandi eldmóði, skynsemi og þekkingu.
Um leið og hann reifar djúptæk áhrif tæknibyltinga síðustu áratuga á samfélagið og deilir persónulegri reynslu leitast hann við að skýra hvers vegna gervigreind er annað og meira en tækninýjung. Öld ímyndunaraflsins er óður til skapandi hugsunar, töfra tungumálsins og alls þess sem gefur lífinu gildi.
Performers
-
Bergur Ebbi
Comedian