Ljósanæturhelgistund með sr. Gumma Kalla ásamt Þremur englum og þreyttum hestum
Keflavíkurkirkja / Keflavik Church, Kirkjuvegur 21, 230 Keflavík Directions
Sun 06.09.2026 20:00
Ljósanæturhelgistund með sr. Gumma Kalla verður í Keflavíkurkirkju sunnudagskvöldið 6. september kl. 20 undir yfirskriftinni - Vitin fimm og minningarnar.
Helgistundin er í umsjón sr. Guðmundar Karls Brynjarssonar prests sem margir þekkja sem Gumma Kalla og með honum er hljómsveitin Þrír englar og þreyttir hestar.
Hljómsveitina skipa að þessu sinni Bergþór Haukdal Jónasson, Birta Rós Sigurjónsdóttir, Henning Emil Magnússon, Jón Ólafur Erlendsson og Örn Úlfar Sævarsson.
Þrír englar og þreyttir hestar hafa getið sér gott orð fyrir flutning á lögum Bob Dylan við ýmis tilefni undanfarin ár, meðal annars við Dylan-guðsþjónustu í Keflavíkurkirkju síðasta vor.
Guðmundur Karl er jafnframt með málverkasýningu í Kirkjulundi yfir Ljósanæturhelgina undir sömu yfirskrift - Vitin fimm og minningarnar.
Verið hjartanlega velkomin í Keflavíkurkirkju til fallegrar stundar í lok Ljósanætur ✨