Leshringur Bókasafns Garðabæjar | hinn klassíski
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorg 7, 210 Garðabær Directions
Tue 22.09.2026 10:30
Leshringur Bókasafns Garðabæjar, hinn klassíski hefur sitt hauststarf þriðjudaginn 22.sept kl.10:30.
Leshringurinn hittist annan hvern þriðjudag kl.10:30 - 12, sex sinnum 22.sept - 1.des.
Fjallað er um fjölbreytt lesefni á hverjum fundi og er þemað nú skáldævisögur, sögulegar skáldsögur, sjálfssögur og skáldaðar heimildasögur.
Meðlimir kynna sér saman bækur og höfunda á leslistanum og segja frá sinni upplifun af lestri verkanna.
Markmiðið er að meðlimir eigi saman ljúfa og fræðandi stund, þar sem spjallað er á líflegan hátt um bækur og lífið og tilveruna með kaffibolla í hönd.
Skráning er ekki nauðsynleg og eru allir innilega velkomnir.