KK, Mugison og Jón Jónsson
Church of Grafarvogur, Fjörgyn 1, 112 Reykjavík Directions
Sat 28.11.2026 19:00
Kæru íbúar Grafarvogs og nærsveitungar, það er okkur sönn ánægja og heiður að koma með Aðventutónleikana okkar í Grafarvogskirkju ❤️
KK, Mugison og Jón Jónsson sameinast enn og aftur á aðventunni og bjóða upp á einstaka tónleika sem hafa á undanförnum árum orðið að föstum lið hjá fjölmörgum.
Á þessum tónleikum geta gestir átt von á blöndu af hlátri, hlýju, magnaðri tónlist og ógleymanlegri upplifun sem gera aðventuna enn betri.
Venju samkvæmt verður með í för hinn hæfileikaríki Þorleifur Gaukur.
Tónleikarnir hafa alla tíð verið uppseldir og notið mikilla vinsælda, enda fátítt að þessir listamenn stígi saman á svið. Það gæti því verið skynsamlegt að tryggja sér miða sem fyrst eftir að miðasalan hefst.
🎟️ Forsala miða hefst 3. sept, en þeir sem eru á póstlista tix komast fram fyrir röð og geta keypt miða frá og með 1. sept 📧
Miðaverð litlar 9.500 í forsölu - 11.500 við innganginn.
Hópabókanir 👉 argvidburdir@gmail.com
Tónleikarnir verða án hlés og standa í 70 mínútur.
Ekki er selt í númeruð sæti heldur verður frjálst sætaval. Því mælum við eindregið með að mæta snemma til að ná góðum sætum 🪑
⛪️ Kirkjan opnar 30 mín áður en að tónleikarnir hefast.
Performers
-
MugisonSolo artist performing in churches
-
Jón JónssonContact: jon@jonjonsson.is
http://www.jonjonsson.is
http://www.youtube.com/jonjonssonmusic
http://www.twitter.com/jonjonssonmusic
-
Davíðsson - The Music of Þorleifur Gaukur
Experience the emotive sounds of Nashville-based Icelandic composer and multi-instrumentalist Thorleifur Gaukur Davidsson