Jólastund fjölskyldunnar
Harpa | Hörpuhorn, Hörpuhorn, 101 Reykjavík Directions
Sat 19.12.2026 11:00
Jólastund fjölskyldunnar
Staður: Hörpuhorn í Hörpu
Dagsetning: Laugardagur 19. desember
Tími: Kl. 11:00–14:00
Aldur: Allur aldur
Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða
Opið hús: Gestir geta komið og farið að vild
Harpa býður börnum og fjölskyldum í hlýlega og notalega jólastund í Hörpuhorni.
Boðið verður upp á jólatónlist, jólaföndur og dansað verður í kringum jólatréð. Auðvitað lætur Maxímús Músíkús sig ekki vanta og mætir í jólaskapi – og hver veit nema jólasveinninn kíki líka!
Opið hús er frá kl. 11:00–14:00 og gestir geta komið og farið þegar þeim hentar.
Komið og eigið notalega jólastund saman í Hörpu!