Íbúa­fund­ur um fram­tíð Víf­ils­staða

Íbúa­fund­ur um fram­tíð Víf­ils­staða

Sveinatunga, Garðatorg 7, 210 Garðabær Directions

Wed 02.09.2026 17:00

Garðabær býður á íbúafund um framtíð Vífilsstaða. Á fundinum verður tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaða kynnt, farið yfir helstu markmið og forsendur skipulagsins og fyrirspurnum svarað.

Í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 stendur nú yfir forkynning á tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar stendur fyrir kynningarfundinum sem haldinn verður í Sveinatungu, Garðatorgi 7, miðvikudaginn 2. september klukkan 17:00-19:00.

Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is, mál nr. 925/2026. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 17. september 2026 í gegnum vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is.

Performers

  • Garðabær
    Garðabær
    Í Garðabæ er hægt að njóta útivistar í óspilltri náttúru sem og menningar en um leið er