Haustjafndægur - Gunnar Andreas Kristinsson

Haustjafndægur - Gunnar Andreas Kristinsson

Lutheran Free Church, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík Directions

Wed 23.09.2026 20:00

English below

Sóljafndægur II er tónleikaröð í Fríkirkjunni í Reykjavík þar sem Heiða Árnadóttir flytur verk eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttur, Sunnu Gunnlaugsdóttur, Gunnar Andreas Kristinsson og Ásbjörgu Jónsdóttur. Þema tónleikanna eru sólstöður og jafndægur. Tónskáldin semja verk sem fléttast inn í þemun.

Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum. Öll velkomin.

Nánari upplýsingar á heidaarna.com

Þessir tónleikar eru styrktir af Tónlistarsjóði og Fríkirkjunni í Reykjavík.

Haustjafndægur 23. september

Equinox - Gunnar Andreas Kristinsson - verk fyrir sópran og víólu.

Á haustjafndægrum skipta birtan og myrkrið deginum jafnt á milli sín. Á þessum tímamótum lítur maður til baka og rifjar upp sólarstundir sumarsins en horfir jafnframt inn í haustið/veturinn og undirbýr sig undir myrkrið sem framundan er. Birtunni fylgir oft gleði og galsi en í myrkrinu er meiri ró og friður. Á haustjafndægrum býr mannfólkið og náttúran sig smám saman undir að leggjast í dvala. Í dvalanum heldur lífið samt áfram sinn vanagang, en áherslurnar breytast. Í myrkrinu getur leynst kvíði sem mannfólkinu tekst oftast að bægja frá með því að leita að styrk, innra með sér og úr umhverfinu. Tónlistin getur t.a.m. lýst upp myrkrið og veitt andlegan styrk. Máttur hennar er mikil.

Í verkinu Equinox mun ég notast við valda texta og textabrot úr íslenskum skáldskap; texta sem fjalla um þennan árstíma, baráttu ljóss og myrkurs, sumarið sem minningu, haustið sem núið og veturinn sem nánustu framtíð. En röddin mun líka syngja ljóð án orða, breytast í hljóðfæri sem tjáir tilfinningar á svipaðan hátt og víólan.

Það er mikill kostur að gera verk fyrir tónlistarfólk eins og Heiðu og Guðrúnu Hrund, sem hafa unnið mikið saman að undanförnu og þekkja vel inn á hvora aðra. Ég mun nýta mér reynslu þeirra og leitast við að skapa hljóðheim sem þær tengja vel við. En ég mun einnig, að einhverju leyti, skora á þær að feta nýjar brautir; jafnvel fara aðeins út fyrir þægindarammann.

Raddböndin eru í raun tveir mannlegir strengir sem víbra innan í barkakýlinu þegar loft streymir um, og líkaminn er einhvers konar magnari. Víólan er hins vegar með fjóra strengi úr stáli sem eru festir við straumlínulagaðan viðarbúk og stroknir með hrosshárum. Ég mun leika mér að því að finna sameiginlega fleti á „hljóðfærunum“ tveimur, þegar kemur að tónmyndun.

Að undanförnu hef ég verið að vinna með yfirtónaröðina og spegilmynd hennar, undirtónaröðina. Yfirtónaröðin er björt og skær, á meðan undirtónaröðin er dimm og djúp. Í verkinu Equinox, sem verður um 15-20 mínútur að lengd, mun ég tefla fram þessum andstæðum.

Um tónskáldið

Gunnar Andreas Kristinsson stundaði tónsmíðanám við Tónlistarskólann í Reykjavík á árunum 1997-2001 undir leiðsögn Kjartans Ólafssonar og Atla Heimis Sveinssonar. Eftir það lá leiðin í Konunglega tónlistarháskólann í Haag þar sem hann lauk meistaragráðu í tónsmíðum árið 2004. Að námi loknu starfaði Gunnar sjálfstætt sem tónskáld í Hollandi auk þess að sækja ýmis starfstengd námskeið. Eftir að hann flutti aftur til Íslands í árslok 2009 starfaði hann í nokkur ár sem stundakennari við LHÍ. Á síðustu árum hefur hann þó fyrst og fremst haft tónsmíðar að aðalstarfi.

Gunnar hefur skrifað verk af ýmsum toga, allt frá einsleiksverkum til hljómsveitarverka, sem flutt hafa verið af nafnkunnum tónlistarmönnum/-hópum á tónlistarhátíðum innanlands sem utan. Þrjú verka Gunnars hafa verið tilnefnd til Íslensku tónlis- tarverðlaunanna, hljómsveitarverkið Gangverk englanna 2013, strengjakvartettinn Moonbow árið 2017 og Píanókonsert 2024. Fyrsta plata Gunnars, Patterns, hlaut Kraumsverðlaunin 2013, önnur plata hans, Moonbow, kom út hjá bandarísku útgáfunni Sono Luminus árið 2021. Platan hlaut lof gagnrýnenda víða um heim og rataði m.a. á langlista fyrir Grammy verðlaunin.

Á árinu 2025 var ýmislegt á döfinni hjá Gunnari. Í mars var Catalysis 2 fyrir tölvustýrt orgel frumflutt í Hallgrímskirkju, í apríl var saxófónkvartettinn Reflections frumfluttur af sonic.art í Berlín og í maí var Catalysis 1 fyrir tölvustýrt orgel frumflutt í Fríkirkjunni í Reykjavík auk þess sem ný útgáfa af Búkollu - tónlistarævintýri var frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands á þrennum skóla tónleikum í Hörpu.

Í nóvember 2025 flutti kammerhópur upprunalega úgáfu af Búkollu nokkrum sinnum, í skólaheimsóknum á Vesturlandi. Nýr klarinett kvintett (klarinett + strengjakvartett) var frumfluttur af Grími Helgasyni og Caput á Myrkum músíkdögum í janúar 2026. Verkið „dolce inversione“ fyrir tölvustýrt orgel var frumflutt í Hallgrímskirkju í febrúar s.l.

Gunnar var valinn úr fjölda umsækjenda í norrænu resídensíuna Circolo Scandinavo í Róm og dvaldi hann þar í desember og janúar s.l..

https://gunnarandreas.com/

Um flytjandann:

Guðrún Hrund Harðardóttir er fjölhæf tónlistarkona með brennandi áhuga á nýrri og gamalli tónlist. Hún elskar að spila með öðrum í stórum og litlum hljómsveitum og stundum ein, að framkalla töfrandi tóna með því að strjúka stálstrengi nútímavíólunnar og girnisstrengi barokkvíólunnar sinnar. Hún er góð í blaðlestri og að útfæra flókna ryþma en líka að spinna og njóta þess að dvelja í spennu ómstríðra hljóma sem leysast mjúklega upp í hrein og ómblíð tónbil. Hún elskar tærleikann og húmorinn í tónlist Mozarts en Bach er sálufélagi í gleði og sorg. Guðrún Hrund stundaði framhaldsnám í tónlist við Tónlistarháskólann í Köln á árunum 1995-2000, Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag frá 2002-06 (sérnám í barokkvíóluleik og upprunaflutningsmáta) og stundar nú mastersnám í listkennslu við Listaháskóla Íslands (stefnir á útskrift haustið 2024).

Guðrún Hrund hefur verið fastráðin víóluleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2010 og leikur með hljómsveitinni á flestöllum tónleikum hennar í Hörpu og tekur reglulega þátt í beinum tónleikaútsendingum í sjónvarpi og útvarpi. Á undanförnum árum hefur hún tekið þátt í tónleikaferðum um Japan, Bretland, Þýskaland og Austurríki og leikið inn á fjölmarga geisladiska með hljómsveitinni.

Guðrún Hrund leikur reglulega með Kammersveit Reykjavíkur, fjölbreytta tónlist allt frá barokki til nútímatónlistar en hún var einnig listrænn stjórnandi og framkvæmdarstjóri Kammersveitarinnar á árunum 2010-2014.

Guðrún hefur brennandi áhuga á barnamenningu og hefur skipulagt og komið fram á mörgum tónleikum á Barnamenningarhátíð í Reykjavík, m.a. með Kammersveitinni og Nordic Affect. Hún er umsjónarmaður tónleikaraðarinnar Krakkamengi í Mengi við Óðinsgötu í Reykjavík.

Guðrún Hrund er víóluleikari Barokkbandsins Brákar og Alþjóðlegu barokksveitarinnar í Haag/Reykjavík. Var framkvæmdarstjóri hljómsveitarinnar frá 2005-2012 og skipulagði tónleika sveitarinnar á Íslandi í samstarfi við Listvinafélagið í Reykjavík (áður Listvinafélag Hallgrímskirkju). Hún lék með tónlistarhópnum Nordic Affect á tónleikum í fjölmörgum löndum á árunum 2008-18, m.a. Belgíu, Þýskalandi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Bandaríkjunum auk þess að leika inn á 3 hljómdiska fyrir bandaríska útgáfufyrirtækið Sono Luminus.

Guðrún Hrund var meðlimur í Íslenska strengjaoktettinum sem lék með Björk á plötunni Homogenic og ferðaðist í kjölfarið um Evrópu, Bandaríkin, Suður-Ameríku og Japan og hún lék einnig með Björk og strengjasveit á plötunni Vulnicura sem kom