HaminguSöngpartý með Guðrúnu Árný í Hellisgerði

HaminguSöngpartý með Guðrúnu Árný í Hellisgerði

Hellisgerði Hafnarfirði, Skúlaskeið, 220 Hafnarfjörður Directions

Fri 04.09.2026 20:00

Föstudaginn 4.september kl.20:00

Komdu og syngdu með undir berum himni í Hellisgerði þegar Guðrún Árný leiðir sannkallað HamingjuSöngpartý á Hamingjudögum í Hafnarfirði 🎤🎵

Söngur, samvera og gleði fara vel saman og á þessu kvöldi gefst tækifæri til að sleppa fram af sér beislinu, syngja af hjartans lyst og njóta góðrar stemningar í einstöku umhverfi 🌱

Rannsóknir hafa sýnt að söngur getur aukið vellíðan, dregið úr streitu og styrkt samfélagsandann og því er söngpartýið tilvalin leið til að fylla á orkuna og gleðina. Hvort sem þú syngur alla daga eða aðeins í sturtunni þá ertu hjartanlega velkomin(n) að taka þátt 🎶

Komdu með góða skapið, taktu lagið með okkur og njóttu kvöldstundar fullrar af söng, gleði og samveru í Hellisgerði!

HamingjuSöngpartý er hluti af Hamingjudögum í Hafnarfirði, sjá nánar 👉 hfj.is/hamingjudagar

Hlökkum til að sjá ykkur! 🤗

Performers