Gullöld sveiflunnar - Stórsveit Reykjavíkur

Gullöld sveiflunnar - Stórsveit Reykjavíkur

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions

Sun 10.01.2027 20:00

Stórsveit Reykjavíkur heldur sína árvissu og vinsælu nýárstónleika í Eldborg. Tónleikarnir eru helgaðir swingtímabilinu 1930-50, þegar stórsveitir réðu ríkjum í tónlistarheiminum og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma. Ný og spennandi efnisskrá á hverju ári úr nótnabókum stórsveita Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie, Woody Herman, Tommy Dorsey og fleiri. Einungis eru fluttar upprunalegar útsetningar og ekkert er sparað til að gera þennan atburð sem glæsilegastan. Gestasöngvarar ársins eru þau Salka Sól og Jógvan Hansen. Sigurður Flosason stjórnar og kynnir.

Performers