GKR -10 ára

GKR -10 ára

Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Directions

Sat 10.10.2026 21:00

MIÐAR Á TAKMÖRKUÐU FORSÖLUVERÐI:

https://tix.is/en/event/22158/gkr-10-ara

10 ár eru liðin frá því að GKR gaf út plötuna „GKR“ í formi morgunkornspakka í Kjötborg og því ber að fagna!

Þann 10. október fyllir GKR Iðnó ásamt vel völdum gestum. Þetta eru fyrstu miðasölutónleikar GKR á Íslandi í 9 ár og einstakt tækifæri til að taka á móti honum á heimavelli. Rapparinn er loksins fluttur heim eftir 5 ára dvöl í Noregi og getur ekki beðið eftir að sýna ykkur hvað lært hefur.

Tónleikarnir sem fara fram í Iðnó munu líkt og allt sem GKR gerir, vera einstök upplifun.

GKR ættu allir íslenskir tónlistarunnendur að þekkja en hann kom fram á sjónarsviðið árið 2015 með laginu sínu "Morgunmatur". Í dag er hann einn fremsti rappari landsins, þekktur fyrir rafmagnaða sviðsframkomu, framúrstefnuleg tónlistarmyndbönd og að koma íslensku rappi á heimskortið.

UPPHITUN: tatjana & ungurorri

Takmarkaður fjöldi miða á forsöluverði (NÝTIÐ YKKUR ÞAÐ):

https://tix.is/en/event/22158/gkr-10-ara

SJALDGÆFUR VIÐBURÐUR.

HÆTTULEGA GÓÐIR TÓNLEIKAR.

Styrktaraðilar eru Orka og Next Level Gaming

Performers

  • GKR
    GKR

    Music video featured in the event

  • Tatjana
    Tatjana

    Performer with a hip-hop focus