Fjölskyldujólatónleikar Gunna og Felix
safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, , Hafnarfjörður Directions
Sat Dec 19 2026 17:00
Fjölskyldu jólatónleikar Gunna og Felix
Gaflaraleikhúsið kynnir:
Fjölskyldu jólatónleikar Gunna og Felix 2026
Gunnar Helgason og Felix Bergsson eða Gunni og Felix eru meðal vinsælustu skemmtikrafta þjóðarinnar eftir rúmlega 30 ára samstarf.
Og nú er komið að því að draga fjölskyldur þeirra félaga inn í stuðið og blása til FJÖLSKYLDU JÓLATÓNLEIKA í Hafnarfirði þann 19. desember 2026.
„Við erum svo heppnir að börnin okkar og tengdabörn eru hæfileikaríkasta fólk í heimi!” segir Gunnar, hógvær að vanda.
„Já, algjörir feðrabetrungar,” bætir Felix við.
„Leikarar og söngvarar og grínistar og módel og ég veit ekki hvað,” segir Gunni.
„Nákvæmlega!” bætir Felix við.
„Einn daginn var Felix að monta sig af barnabörnunum og þá sagði ég: verðum við ekki að fá ALLA snillingana okkar með okkur upp á svið? Fellinn keypti hugmyndina strax!” segir Gunni.
„Enda besta hugmynd allra tíma,” bætir Felix við.
„Þetta verður auðvitað að vera með Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði, sagði ég, og Felix tók heilshugar undir það,” segir Gunni.
„Heilshugar!” bætir Felix við.
„..og eigum við ekki að biðja Pálma Sigurhjartarson um að vera með hljómsveit og fá kórinn hennar Maríu Gunnars úr Setbergsskóla með flottustu barnasöngvurunum í Hafnarfirði spurði ég,” segir Gunni.
„Ég sagði bara - JÁ!” bætir Felix við.
„Er eitthvað fleira sem þú vilt bæta við Felix?” spyr Gunni.
„Bæta við?” bætir Felix við.
„Já, svona eins og til dæmis að tónleikarnir verða í Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju?” spyr Gunni.
„Jú endilega” bætir Felix við
„...og að það sé miðasala á stubb.is?” spyr Gunni.
„Auðvitað, ekki má gleyma því,” bætir Felix við.
„Þá bætum við því við,” segir Gunni.
„Flott” bætir Felix við.
„Eitthvað fleira?” spyr Gunni.
„Já! Það er skyldumæting! Fjöl-skyldumæting!” bætir Felix við og Gunni er orðlaus af áðdáun.
Fjölskyldujólatónleikar Gunna og Felix
ásamt öllum börnum og barnabörnum Gunna og Felix
Kór Setbergsskóla
Hljómsveit Pálma Sigurhjartarsonar
Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju 19 desember 2026
Tónleikarnir eru klukkutími að lengd og það er tilvalið að fara í Jólaþorpið á undan eða eftir.
PS. Tveggja ára og yngri fá frítt inn ef það er setið undir þeim.